Engar vörur í körfunni
Kormákur og Skjöldur hefur hannað glæsilegan bleikan klút fyrir styrktarfélagið Göngum saman.
Hönnuðirnir leika sér með mynd af krabba og brjóstamerki Göngum saman. Klúturinn er afar smekklegur og nýtilegur, er fyrir alla, gengur við allt og á alltaf við.
Það er við hæfi að frumsýna klútinn í bleikum október og styðja við baráttuna við brjóstakrabbamein, styrkja rannsóknir á brjóstakrabbameini og um leið leiðina að lækningu. Göngum saman hefur veitt 165 milljónir til rannsókna frá stofnun félagsins og mun í ár styrkja vísindafólk um 15 milljónir.
Allur ágóði af sölunni fer beint í Vísindasjóð félagsins.
Bleikt partý verður haldið 9. okt kl 16 - 18 í Herrafataverslun Kormákar og Skjaldar Laugavegi 26.
Styðjum baráttuna og flöggum bleikum fallegum klút.
Ekki láta þitt eftir liggja, tryggðu þér bleikan klút.
Efni:
· 100% Bómull
Translation missing: is.wishlist.modal_alert.message