6% Léttur fiðringur i maganum
24% Konungleg káetan klædd hlýjum ilmandi sedrusviði
8% Virðuleg gönguferð um þilfarið
17% Keimur af sjávarseltu og olíu í bland við kölnarvatn prúðbúna farþega
12%. Stjörnubjartur himinn yfir óravídd hafsins
33% Vaggandi hreyfingar skipsins gefa fyrirheit um ævintýr á ókunnum ströndum
Úti á öldum Atlantshafsins hafði hin forna íslenska Baðstofuvaka birst og tekið á sig mynd 20 aldar.
Engin stéttaskipting, höfðinglegar móttökur og veisla á hverjum degi.
"gullfoss með glæstum brag greiðir oss heillaför”
Skeggolía Kormáks & Skjaldar gefur skegginu frísklegt og gott útlit. Olían er unnin af Nordic angan, sem sérhæfir sig í ilmum og ilmtengdum upplifunum.
Notkun: Klínið nokkrum dropum af olíunni í skeggið og nuddið vel. Á meðan skeggolían nærir skegg og húð leikurinn ilmurinn við vitin og sendir sálina á flakk um íslenska náttúru.