K&S Sixpensari Icelandic Tweed - Forystufé - Flóki
K&S Sixpensari Icelandic Tweed - Forystufé - Flóki
K&S Sixpensari Icelandic Tweed - Forystufé - Flóki

    K&S Sixpensari Icelandic Tweed - Forystufé - Flóki

    23,900 kr.
    VSK. innifalinn Sendingargjald reiknast við greiðslu.
    VÖRULÝSING

    Góður forystusauður fór á undan í slæmri færð og fann bestu leiðina, hann rataði vel í hríðarbyljum og skilaði fé í hús heilu og höldnu. Með harðfylgi sínu, vitsmunum og einstökum forystueiginleikum hefur íslenska forystuféð margsannað gildi sitt og not.

    Fullvíst er talið að fé með hegðunarmynstur íslenska forystufjárins sé hvergi þekkt í heiminum nú á dögum nema á Íslandi. Þessi eiginleiki er því afar fágætur.

    Í samvinnu við Fræðasetrið um forystufé á Svalbarða hafa Kormákur og Skjöldur nú framleitt vaðmál úr ull af þessum merkilega stofni.

    Hér er klassískur tweed sixpensari úr smiðju Kormáks & Skjaldar gerður úr 100% ull af íslensku forystufé.

    -Þú ratar alltaf aftur heim.

    ATH! Stærðirnar á þessum eru litlar svo takið 1-2 númerum stærra en venjulega.

    Tengdar vörur

    EFST Á SÍÐU