Árið 1897 stofnaði Clinton C. Filson fatamerki undir eigin nafni og hóf framleiðslu á fatnaði og ullarteppum fyrir gullgrafarana í Klondike. Hann byggði orðspor sitt á heiðarleika og sætti sig ekki við neitt annað en það besta þegar kom að Filson klæðnaði. Í yfir 120 ár hafa Filson flíkurnar verndað iðnaðar- og ævintýramenn fyrir náttúruöflunum og eru hvað þekktust fyrir þægindi og endingu.
Í frá 1914 má lesa eftirfarandi texta:
“TIL VIÐSKIPTAVINA OKKAR: haldi maður norður skal hann fyrst leita til okkar eftir fatnaði. Af samansöfnuðum reynslusögum fjölmargra norðanmanna höfum við gert okkur grein fyrir því hvers lags fatnaður henti best þar á slóðum. Fötin eru gerð úr bestu fáanlegu efnum því fyrir okkur er hið besta ekki of gott og gæðin skipta okkur öllu. ÞÉR GETIÐ TREYST Á GÆÐI FATAEFNA OKKAR JAFNT SEM HANDBRAGÐIÐ.
Vandað og hlýtt ullarvesti frá Filson sem á sér aðdáendur meðal bænda, skógarhöggsmanna og útivistarfólks um allan heim. Veitir góðan il án þess að flækjast fyrir og heldur einangrunareiginleikum sínum...
Klassískur mittisjakki frá Filson. Ef þú vilt harðgerðar flík sem endist og endist þá ættirðu að kíkja á þennan. Fullkominn hversdags- eða vinnujakki fyrir vindasamt, kalt og blautt veður. Vaxborið...