No Products in the Cart
Falleg rúllukragapeysa framleidd á Íslandi úr íslenskri lambsull. Peysurnar eru burstaðar að innan svo þær eru einstaklega mjúkar og þægilegar.
Efni:
Um ullina:
Glófi ehf hefur undanfarin ár unnið að þróun á nýju mjúku bandi úr lambsull
í samstarfi við Ístex. Bandið er unnið úr lambsull sem er með þynnri og þar með mýkri hárum en hefðbundin ærull og stingur því ekki eins og ærullin. Við þróun bandsins var
farið í gengum alla meðhöndlunarferla frá rúningu til frágangs á fullunnum
vörum og leitað leiða til að bæta meðferðina á hráefninu, m.a með því að
fara yfir í náttúruleg efni í meðferð ullarinnar og bandsins við þvott,
þurrkun og ýfingu.