Síðan Loake Shoemakers var stofnað árið 1880 hefur það verið í eigu sömu fjölskyldunnar. Þrír bræður, John, William og Thomas Loake hófu rekstur í bakhúsi við heimili Thomas í Kettering í Northamptonshire á Englandi. Fjórtán árum eftir stofnun fyrirtækisins flutti það í verksmiðjuna við Wood Street og er starfrækt þar enn þann dag í dag.

Árið 2007 fékk Loake síðan konunglega viðurkenningu hennar hátignar Elísabetar drottningar sem veitt er þeim aðilum sem reglulega þjónusta og framleiða vörur fyrir konungsfjölskylduna á Englandi. Má sjá stimpil því til staðfestingar á öllum Loake umbúðum.

Vandað handverk og fyrsta flokks efni hefur einkennt Loake skó allt frá upphafi og sannur heiður að fá að selja ykkur þennan vandaða skófatnað með yfir 130 ára sögu.

BACK TO TOP